Lýsing
Plástrar úr lífrænum bambus með kókosolíu, unnir úr náttúruefnum og öll framleiðslan tekur mið af því að minnka kolefnafótsporið. Plásturinn er án allra ónauðsynlegra aukaefna og sérstaklega þróaðir fyrir viðkvæma húð. Margir sem fá ofnæmisviðbrögð og rauða húð undan hefðbundnum plástri geta notað Patch plástrana án þess að finna fyrir slíkum einkennum.
Kókosolía er rík af laurínsýru sem dregur úr líkum á sýkingum og hjálpar þannig til við að hlú að minni rispum.
Kemur í stað plástra úr plasti og í plastumbúðum
Innihaldsefni
sjálflímandi lím úr náttúruefnum, vottaðar lífrænar bambustrefjar, vottuð lífræn bambus grisja, kókosolía
Umbúðir
Filman utan um plásturinn er jarðgeranlegt lífplast. Pakkningin utan um plástrana er pappahólkur.
Upprunaland
Ástralía
Laus við plast, merthiolate/thimerosal og latex. Ekki prófaðir á dýrum
Flokkast sem
Plásturinn er jarðgeranlegur og fer í moltu eða almennt rusl. Lífplastfilman utan af plástrinum fer í almennt rusl. Pakkningin flokkast sem pappi.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.