Lýsing
Plástrar úr lífrænum bambus, unnir úr náttúruefnum og öll framleiðslan tekur mið af því að minnka kolefnafótsporið. Plásturinn er án allra ónauðsynlegra aukaefna og sérstaklega þróaðir fyrir viðkvæma húð. Margir sem fá ofnæmisviðbrögð og rauða húð undan hefðbundnum plástri geta notað Patch plástrana án þess að finna fyrir slíkum einkennum.
Patch plástrarnir loka sárinu en anda um leið vel sem getur hjálpað til við að draga úr sýkingum.
Kemur í stað plástra úr plasti og í plastumbúðum
Innihaldsefni
sjálflímandi lím úr náttúruefnum, vottaðar lífrænar bambustrefjar, vottuð lífræn bambus grisja
Umbúðir
Filman utan um plásturinn er jarðgeranlegt lífplast. Pakkningin utan um plástrana er pappahólkur.
Upprunaland
Ástralía
Laus við plast, merthiolate/thimerosal og latex. Ekki prófaðir á dýrum
Flokkast sem
Plásturinn er jarðgeranlegur og fer í moltu eða almennt rusl. Lífplastfilman utan af plástrinum fer í almennt rusl. Pakkningin flokkast sem pappi.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.