Lýsing
Lífræn hárolía með argan olíu, náttúrulega bakteríudrepandi. Djúpnæring með arganolíu er góð fyrir miðlungs og þykkt hár. Gott fyrir litað og þurrt hár. Argan olían gerir hárið meira glansandi og viðráðanlegra. Sólblómaolían er næringarrík og gefur hárinu raka. Frá Chagrin Valley.
Innihaldsefni
Lífræn argan olía, lífræn sólblómaolía
Laus við plast
Umbúðir
Gler og ál
Upprunaland
Bandaríkin
Notkun
Létt hárnæring: Nota má olíuna eins og létta hárnæringu sem ekki er skoluð úr. Settu nokkra dropa í lófann að loknum hárþvotti, nuddaðu lófunum saman svo olían dreifist vel og strjúktu svo lófunum í gegnum hárið. Þetta má gera bæði við blautt og þurrt hár. Greiðið svo hárið vel svo olían dreifist enn betur um hárið.
Næring fyrir hársvörð og hár: Vermdu 1 – 2 tsk af olíunni og nuddaðu í hársvörðinn. Næst þarf að vinna olíuna niður eftir hárinu, út í hárendana. Láttu svo standa í 15 mínútur áður en þú þværð og skolar.
Djúpnæring fyrir hár: Nuddaðu olíunni í hárið og vefðu handklæði utan um og bíddu í um 30 mínútur eða lengur. Þvoðu hárið svo eins og þú ert vön/vanur.
Flokkast sem
Umbúðir flokkast sem gler og málmur
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.