Lýsing
100% náttúrulegur skrúbbur fyrir líkama og andlit gerður úr lífrænu möluðu kaffi, sjávarsalti og lífrænum hrásykri auðgað með nærandi olíum, piparmyntu og E-vítamín olíu sem er þekkt fyrir andoxunar eiginleika sína.
Taktu eina eða tvær handfylli af skrúbbnum og nuddaðu létt á blauta húð í hringlaga hreyfingum. Til að bera á andlitið þarf lítið magn og bera varlega á í litla hringi. Skolaðu skrúbbinn af undir vatnsbunu og taktu eftir hve nærð húðin er á eftir. Hreinsaðu vel sturtuna eða baðið á eftir.
Varan er vegan og ekki prófuð á dýrum.
Varan er 100% náttúruleg, handgerð í litlum lotum.
Innihaldsefni:
Lífrænt malað kaffi, sjávarsalt, lífrænn hrásykur, þrúgukjarnaolía, kakósmjör, argan olía, E-vítamín olía, piparmyntu ilmkjarnaolía. Limonene*, linalool*.
* Náttúruleg innihaldsefni ilmkjarnaolía.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.