Skilmálar

Vefverslun Vistveru og verslun Vistveru Grímsbæ eru reknar af:

Vistvera ehf.
Kt. 490320-2610
Efstaland 26
Sími: 537 8478
info@vistvera.is

VSK númer 137377

Með því að nota vefverslun Vistveru samþykkir þú þessa skilmála.

Pantanir

Tekið er við pöntunum í gegnum netverslunina allan sólarhringinn. Vistvera ehf. sendir staðfestingu í tölvupósti þegar greiðsla hefur borist. Athugið að greiðsla er ekki samþykkt fyrr en staðfest er að varan er til á lager hjá okkur. Þegar búið er að samþykkja greiðslu og senda pöntunina af stað færðu staðfestingarpóst þess efnis. Sérpantanir eru mögulegar í flestum tilfellum, en afgreiðslutími mismunandi eftir vörumerkjum, hafðu samband á info@vistvera.is með frekari fyrirspurnir.

Vistvera ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis. Þetta á einnig við ef um villur í reiknireglum vefverslunnar eiga sér stað.

Verð

Öll verð í vefversluninni eru í íslenskum krónum. Verð geta breyst án fyrirvara. Öll verð eru með vsk. Og eru reikningar gefnir út með vsk. sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Við sendum allar vörur með Íslandspósti. Sendingakostnaður er að jafnaði kr. 990 þegar viðskiptavinur velur að fá pakkann sendan á næsta pósthús, en kr. 1.300 ef senda á pakkann heim að dyrum. Ef pantað er fyrir kr. 10.0000 eða meira í einni pöntun fellur sendingarkostnaður niður fyrir þá pöntun.

Tilboð í vefverslun gilda í sumum tilfellum eingöngu fyrir vefverslun. Með sama hætti gilda tilboð í verslunum ekki alltaf í vefverslun.

Afhending vöru

Vörur er hægt að sækja í verslun okkar í Grímsbæ á afgreiðslutímum hennar (þá er sendingarkostnaður ekki rukkaður), sjá afgreiðslutíma, eða fá þær sendar með Íslandspósti á næsta pósthús. Pantanir eru að jafnaði afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager munum við hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Á vefsíðu Íslandspósts eru þessar upplýsingar aðgengilegar. Vistvera ehf. ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi.

Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Vistveru ehf. til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Hægt er að greiða fyrir að tryggja vöruna ef samið er um það sérstaklega og bætist sá kostnaður ofan á verð og sendingarkostnað skv. gjaldskrá Íslandspósts hverju sinni. Skrifið okkur póst á info@vistvera.is ef þið viljið tryggja sendinguna. Allar sendingar eru rekjanlegar.

Að skipta og skila vöru

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í formi sömu eða sambærilegrar vöru í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist. Upphæð bóta vegna galla verður aldrei hærri en verðmæti upprunalegu vörunnar. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup nr. 48/2003

Trúnaður (Öryggisskilmálar)

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Vistvera ehf. mun ekki afhenda þriðja aðila persónuupplýsingar sem verða til í tengslum við viðskiptin eða varðveita þær lengur en ástæða er til.
Privacy policy All personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur
Governing law / Jurisdiction
These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law

Shopping Cart