Vörulýsing
Marseille jurtasápa frá Salon-de-Provence, byggir á framleiðsluhefð sömu fjölskyldunnar síðan frá því um 1900. Mild sápan, sem er eingöngu úr náttúrulegum efnum og án allra aukaefna, fer vel með viðkvæman þvott, umhverfið og er þar að auki sérlega endingargóð. Þvottasápan frá Marius Fabre hefur einnig reynst vel fyrir þá sem eru með viðkvæma húð eða ofnæmi og er m.a.s einnig mælt með henni til hand-, andlits- og líkamsþvotta.
Notkun
Fyrir erfiða bletti: Nuddaðu blettinn með Marseille kubbnum áður en þú setur flíkina í þvottavél. Kjörið fyrir t.d. fitubletti, erfiða bletti og skyrtukraga.
Fyrir þvott í höndunum: Bleyttu þvottinn. Láttu sápuna freyða, þvoðu mjúklega, sérstaklega viðkvæman textíl s.s. silki, blúndu og ull. Skolaðu í hreinu vatni.
Sápuna má einnig nota fyrir andlit, hendur og líkama.
Kemur í stað þvottasápu í plasti og sápu með plastögnum
Innihaldsefni
100% jurtaolíur (Oleic sólblómaolía, kókosolía)
Án aukefna
Án pálmaolíu, vatn, Sodium cocoate, Glycerin*, salt og vítissódi.
*Ekki er um að ræða Glycerín eins og finnst í svokölluðum „Glycerín sápum“ heldur Glycerín sem er náttúrulegur hluti plöntuolíunnar.
Laus við fösföt, rotvarnarefni og tilbúin litar- og lyktarefni
Stærð
200g eða 400g.
Umbúðir
Pappi
Upprunaland
Frakkland, vottuð Marseille sápa
Flokkast sem
Sápan notist upp til agna
Umbúðir flokkast sem pappi
Tengdar vörur
Tengdar vörur
-
Lífræn sápuber til þvotta – 1 kg
5,490 kr. -
Innkaupanet, appelsínugult
1,290 kr. – 1,490 kr. -
Lífræn sápuber til þvotta – 500 g
3,290 kr.