Lýsing
Veggspjald með teikningu Benedikts Gröndal af vaðfuglum, bæði varpfuglum og flækinga. Teikningin er úr einu af höfuðverkum Benedikts, Dýraríki Íslands.
Benedikt Gröndal Sveinbjarnarson fæddist á Álftanesi 1826 og lést í Reykjavík árið 1907. Hann var einn helsti menningarfrömuður Íslendinga á 19. öld, afburða málamaður, norrænufræðingur, skáld og rithöfundur, lipur teiknari og mikill áhugamaður um náttúru Íslands. Á efri árum varði hann nánast hverri stund við söfnun náttúrugripa, við að teikna dýr og plöntur og kynna Íslendingum og erlendum gestum náttúru Íslands með því að koma á fót vísi að náttúrugripasafni. Hann var einn af stofnendum Hins íslenska náttúrufræðifélags og fyrsti forseti þess. Hús hans við Vesturgötu í Reykjavík hefur nú verið gert upp og flutt í Grjótaþorpið. Þar stendur Reykjavíkurborg fyrir litlu safni tileinkað minningu hans og verkum.
Efni
Pappír
Stærð
40 x 50 sm
Umbúðir
Pappahólkur
Upprunaland
Ísland
Flokkast sem
Pappír
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.