Lýsing
Brjóstakrem fyrir konur með barn á brjósti.
Júllupartý er 100% náttúrulegt og handunnið. Kremið hefur aðeins þrjú innihaldsefni og er án allra aukaefna.
Þar að auki eru þrjár jurtir í kreminu sem næra og mýkja auk þess að hafa róandi áhrif og græðandi: Kamilla, Morgunfrú og Vallhumall.
Grunnurinn í kreminu er Lanolín unnið úr ull. Áhrif lanolíns eru svipuð áhrifum feitinnar úr okkar eigin húð: Tefur uppgufun raka og heldur húðinni mýkri en ella
Kókosolía virkar vel sem rakakrem og er einnig góð vörn gegn bólum. Hún er sótthreinsandi og er því góð á sár, útbrot og auma húð
Kamilla (Matricaria recutita) er gjarnan talin róandi fyrir börn og fullorðna. Hún er því stundum notuð gegn stressi, kvíða og jafnvel svefnleysi. Kamilla er mikið notuð við magakveisum og óróleika hjá börnum
Morgunfrú (Calendula officinalis) er þekkt fyrir bólgueyðandi, bakteríu-, vírus- og sveppadrepandi áhrif
Vallhumall (Achillea millefolium) er, hefðinni samkvæmt, notaður til að stöðva blæðingar, græða sár og húðkvilla. Vallhumall getur einnig verið afar gagnlegur gegn kvefi, hálsbólgu, flensu og hita.
Fröken Sonja er snyrtivörufyriræki á Norðurlandi Vestra sem framleiðir Vanadís snyrtivörurnar.
Innihaldsefn
Lanolín (Adeps lanae/Lanolin), Kókosolía (Cocos Nucifera (Coconut) Oil, Vallhumall (Achillea Millefolium Flower Extract, Morgunfrú (Calendula Officinalis Flower Extract, Kamilla (Matricaria Recutita Flower Extract, Vítamín E (Tocopherol)
Laus við plast, paraben, súlfat, rotvarnarefni, litarefni og ilmefni, bindiefni, þalöt, própylen glýkol, bensínatum, paraffín, ál
Umbúðir
Málmur
Upprunaland
Ísland
Notkun
Berið Júllupartý á geirvörtu eftir þörfum.
Þar sem innihaldsefnin eru öll 100% náttúruleg þarf ekki að þurrka kremið af fyrir brjóstagjöf.
Flokkast sem
Umbúðir flokkast sem málmur
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.