Lýsing
Hálendið fyllir vitin og ekkert liggur á. Fjallið gnæfir yfir og dalalæðan leggst í hvilftirnar. Svalandi sopi og beiskt bragð í munni.
Þetta er Fjallabaksleið.
Við erum gríðarlega spennt fyrir þessu samstarfi með Nordic angan, sem hefur fangað upplifun og ilm íslenskrar náttúru og komið í glös. Útkoman er töfrandi ilmheimur sem nærir líkama og sál. Innblásturinn eru staðir á Íslandi sem við öll þekkjum, elskum og eigum flest góðar minningar frá.
Stærð: 10ml
Ilmprófíll:
- 12% – Fjallaloft
- 8% – Mistur
- 22% – Fjalldrapi
- 8% – Lyng
- 3% – Þvöl lopapeysa
- 23% – Blóðberg
- 3% – Mosi
- 14% – Ískalt jesúlaði
- 7% – Beiskur brjóstsykur
Skeggolía Kormáks & Skjaldar gefur skegginu frísklegt og gott útlit. Olían er unnin af Nordic angan, sem sérhæfir sig í ilmum og ilmtengdum upplifunum.
Notkun: setjið nokkra dropa af olíunni í skeggið og nuddið vel. Á meðan skeggolían nærir skegg og húð leikurinn ilmurinn við vitin og sendir sálina á flakk um íslenska náttúru.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.