Lýsing
Margnota kaffipokar úr vottaðri lífrænni bómull úr sjálfbærri ræktun. Bómull smitar ekki bragði í drykkinn ólíkt pappír. Pokarnir eru endingargóðir og vandaðir og endast allt að eitt ár með mikilli notkun. Pokarnir eru framleiddir við góð starfsskilyrði og sanngjörn laun.
Bómullinn drekkur í sig eitthvað af olíunni sem kemur úr kaffibaununum án þess að rýra bragðið. Kaffið verður því tært og bragðmikið eins og úr uppáhellingu með pressukönnu en án þungs olíukeimsins.
Kemur í stað einnota pappírsfiltera og nælonpoka
Efni
Lífræn bómull
Laust við plast
Stærð
Stærð 6-13 / 21 sm x 21 sm
Umbúðir
Pappabox
Upprunaland
Texas, Bandaríkjunum
Meðhöndlun / Þrif
Tæmdu kaffið úr pokanum, skolaðu, hengdu upp og láttu þorna vel
Flokkast sem
Textíll, umbúðir sem pappi
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.