Lýsing
Uppþvottasvampur úr bómull, hör og bambusefni. Miðjulagið er úr bambusefni, með bakteríudrepandi eiginleika og góða rakadrægni. Plastlaus og jarðgeranlegur. Önnur hliðin er úr höri og skrúbbar vel.
Tabitha Eve er lítið breskt fyrirtæki sem handgerir ýmsar textílvörur. Við alla framleiðsluna er hugað að umhverfinu, allt frá því að leitast við að búa til sem minnst rusl við framleiðsluna til þess að leita stöðugt betri hráefna sem bæði eru slitsterk og standast kröfur um sjálfbæra framleiðslu.
Kemur í stað skrúbba úr gerviefnum
Efni
Bómull, hör og bambusefni.
Laus við plast og eiturefni
Umbúðir
pappastrimill
Stærð
11 x 9 sm
Upprunaland
Bretland
Meðhöndlun / Þrif
Kreystið vatnið vel úr eftir notkun. Hengið upp til þerris. Þvoið í höndum eða í þvottavél af og til ef þið viljið. Loftþurrkið.
Flokkast sem
Molta (Gott að klippa smátt fyrst) eða almennt rusl að loknum líftíma
Umbúðir flokkast sem pappír
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.