Viskastykki úr 100% lífrænni bómull frá danska framleiðandanum The Organic Company.
Vörulýsing
Viskastykki úr 100% lífrænni bómull frá danska framleiðandanum The Organic Company (TOC). Stórt viskustykki sem þurrkar vel og er fallegt að hengja upp.
The Organic Company var stofnað árið 2007 og hefur frá upphafi þróað vörur úr lífrænni bómull og með GOTS vottun á öllum vörum frá 2010. Vottunin er tvíþætt, bæði umhverfis og félagsleg. Vörurnar eru lausar við öll eiturefni og réttindi þeirra sem vinna að framleiðslunni eru tryggð. Fyrirtækið byggir á heiðarleika, gegnsæi og metnaði til að breyta til hins betra.