HiBAR – Hárnæringarstykki

2.990 kr.

REPAIR hárnæringarstykki fyrir hár sem hefur hlotið skemmdir vegna hita, efna eða umhverfisáhrifa. Formúlað til að næra, endurhæfa og vernda hárið – skilur við það heilbrigðara, mýkra og með meiri glans en áður.

SOOTHE hárnæringarstykki hentar fyrir þau sem eru með viðkvæman hársvörð eins og kláða í hársverði eða þurrk

MAINTAIN hárnæringarstykki hentar venjulegu hári og hári sem er þvegið sjaldan

CURL hárnæringarstykki er gert sérstaklega fyrir krullað og liðað hár

VOLUMIZING hárnæringarstykki hentar fínu hári, þunnu hári og líflausu hári. Lyftir hárinu og gefur því fyllingu. Temur óstýrilátt og rafmagnað hár

MOISTURIZING hárnæringarstykki  hentar þykku hári, þurru hári, hári sem almennt þarf sérstaka næringu. Oft þarf krullað/liðað hár sérstaka næringu og því hentar það líka fyrir krullað hár. Hjálpar hárinu að ná réttu rakastigi og að gera það meðfærilegra.

MOISTURIZE RAGRANCE FREE hárnæringarstykki hentar þeim sem vilja hársápu án ilmefna, með þykkt hár, þurrt hárr og hár sem almennt þarf sérstaka næringu. Hjálpar hárinu að ná réttu rakastigi og að gera það meðfærilegra.

Vörulýsing

Af hverju HiBAR hárnæringarstykki?
– Sérhannað svo fari vel í hendi við hárþvott og einnig svo það standi vel og þorni auðveldlega sem lengir líftíma þess.
– Lífniðurbrjótanleg innihaldsefni og án allra tilbúinna aukaefna, s.s. litar- og lyktarefna
– Plastlaust
– 100 öruggt fyrir litað og meðhöndlað hár
– Eykur gljáa hársins (Shea smjör og hunangsþykkni)
– Það einkennir sum hársápustykki og hárnæringarstykki að þau skilja eftir sig sápuslikju í hárinu sem safnast upp með tímanum. HiBAR gerir það ekki, heldur hreinsar m.a.s. þessa slikju úr, það þarf því ekki að nota edik eða önnur skolefni með HiBAR stykkjunum.

Efni, umbúðir og framleiðsla
– Engin súlföt, paraben, sílíkon, þalöt, og cruelty-free.
– Náttúruleg litarefni og ilmkjarnaolíur
– Innihaldsefni: Cetearyl Alcohol (Vegetable based*), Behentrimonium Methosulfate (Vegetable Based*), Theobroma Cacao (Cocoa) Seed Butter, Butyrospermum Parkii (Shea Butter), Cocos Nucifera (Coconut) Oil, Glycerin (Vegetable Based*), Panthenol (Vitamin B5), Salix Nigra (White Willow) Bark Extract, Natural Fragrance (Lime Peel Oil, Orange Peel Oil, Lemon Peel Oil, Grapefruit Peel Oil, Ginger Root Oil), Hydroxypropyltrimonium Honey (Honey), Salicylic Acid, Piroctone Olamine, Mineral Pigment CI 77891, CI 77289, CI 77491, Mica. (*Derived Source)
– Umbúðir úr pappa
– Framleitt í Norður-Ameríku

Notkun og Umhirða
– Bleyttu hárnæringarstykkið og nuddaðu milli handanna svo myndist froða. Þvoðu hárið með froðunni eða nuddaðu stykkinu beint í hárið. Skolaðu vel.
– Athugaðu að hárnæringarstykkin freyða þó almennt minna en hársápustykkin og það tekur lengri tíma að dreifa þeim í hárið.
– Passaðu að láta hárnæringarstykkið standa á þurrum stað sem safnar ekki vatni þegar það er ekki í notkun. T.d. með því að láta það standa á sápudiski eða lúffa svampi.

HIBAR 2021, HIBAR 1009, HIBAR 1011, HIBAR 1013, HIBAR 1015, HIBAR 1017, HIBAR 1019

Tengdar vörur

Shopping Cart

Frí afhending með Dropp & Póstinum fyrir pantanir yfir 15.000 kr -  Frí heimsending fyrir pantanir yfir 19.000 kr.

Secret Link
0