Amphora Aromatics – Jojoba olía 100 ml

4.490 kr.

Lífræn Jojoba olía

Innihald: Simmondsia chinensis. Kaldpressuð jójóba olía.

Jojoba er í raun vax frekar en olía, en nýtist vel sem létt burðarolía auk þess að vera góður grunnur fyrir ýmiskonar olíublöndur fyrir andlit. Einni helsti eiginleiki Jojoba er að það líkist náttúrulegri húðfitu. Því er olían góð fyrir þá sem hafa feita húð, en Jojoba kemur jafnvægi á fituframleiðsluna og getur þannig minnkað líkur á bólumyndun.

Jojoba er rík af E-vítamíni og hentar því þeim sem eru með þurra og/eða þroskaða húð sem þarfnast góðrar næringar.

Jojoba olíu má nota sem andlitshreinsi – henni er þá nuddað á andlitið og síðan þvegin af með volgu vatni eða þvottapoka.

Frábært sem hárnæring eða maski, og má blanda við hana þinni uppáhalds ilmkjarnaolíu. Fyrst er hárið þvegið og þurrkað með handklæði og síðan Jojoba olíu nuddað vel í hárið frá rót og alveg út í enda. Vefjið síðan röku handklæði um hárið og leyfið olíunni að bíða í 10 mínútur áður en hún er þvegin úr með sjampói.

Jojoba olían blandast vel með öðrum grunnolíum en einna vinsælast er að blanda henni við möndluolíu fyrir góða og nærandi andlits- og líkamsolíu.

Geymist þar sem börn ná ekki til og fjarri sólarljósi.
Aðeins ætlað til notkunar útvortis.

Ekki til á lager

Vörulýsing

AMP 1007

Tengdar vörur

Shopping Cart

Frí afhending með Dropp & Póstinum fyrir pantanir yfir 15.000 kr -  Frí heimsending fyrir pantanir yfir 19.000 kr.

Secret Link
0