Vörulýsing
Efni: 50-60% endurunnið gler.
LEIÐBEININGAR UM NOTKUN:
Fyllið lampann með lampaolíu og kveikið á honum:
Slökkt verður að vera á olíulampanum og hann kaldur þegar hann er fylltur.
– Fjarlægið brennaraglerið og skrúfið brennarann af.
– Fyllið lampann með lampaolíu, um það bil 2/3. Notið trekt svo það leki ekki.
– Setjið brennarann með kveiknum aftur á og látið kveikinn draga í sig lampaolíuna í um það bil 20-30 mínútur.
– Kveikið á lampanum og stillið hæð logans með skrúfunni á hlið brennarans.
– Setjið brennarglerið aftur á sinn stað.
Athugið að þið gætuð þurft að stilla brennarglerið til að fá það beint. Þegar glerið er beint skal nota málmklemmurnar á brennaranum til að koma því í jafnvægi.
Til að slökkva á ljósinu:
Slökkvið á loganum með því að lækka kveikinn hægt þar til loginn slokknar eða blásið hann út.
Skipta um kveik: Dragið gamla kveikinn út úr brennaranum að neðan og setjið nýja í einnig að neðan og skrúfið upp í rétta hæð.
Mikilvægt:
Brennarglerið verður mjög heitt þegar lampinn hefur logað um tíma. Setjið lampann á slétt yfirborð fjarri eldfimum efnum. Gætið þess einnig að hafa ekkert eldfimt fyrir ofan lampann.
Skiljið aldrei lampann eftir án eftirlits og haldið honum þar sem börn og gæludýr ná ekki til.
Tengdar vörur
Tengdar vörur
-
Iris Hantverk – Skóbursti
1.590 kr. -
Iris Hantverk – Pottabursti
3.990 kr. -
Bo Weevil – Fjölnota poki – M
650 kr.




