Pakki með Dental Lace tannþræði ásamt einni áfyllingu. Tannþráðurinn er úr silki í lítilli glerkrukku. Hægt er að fá tannþráðinn í þremur litum bláum, bleikum og gráum. Tannþráðurinn brotnar auðveldlega niður í náttúrunni á skömmum tíma. Hægt er að kaupa viðbótaráfyllingu.
60 m af þræði eru á hverri rúllu.
Kemur í stað tannþráðar í plasti í plastumbúðum
Efni
Silkiþráður í glerdós með málmloki.
Laus við plast
Umbúðir
Þunn maísplastfilma utan um áfyllinguna, pappi í umbúðum um allan pakkann.
Upprunaland
Bandaríkin
Flokkast sem
Almennt sorp (Þráðurinn brotnar niður í náttúrunni).
Umbúðirnar flokkast sem gler, málmur og pappi, maísplastfilman sem almennt sorp.
– Ekki henda glerumbúðunum, fylltu frekar aftur á þær!